Draumaheimur Dísu

ciao..come stai???

12.06.2007 09:54:53 / dísa

hææææ

Jæja ætla nú ekki að segja neitt sérstakt...soldið langt síðan að mar skrifaði seinast!!

Margt búið að gerast þannig!!

Setti inn nýjar myndir...djamm vetur vor´07 á ítalíumyndir linkinn hérna fyrir hliðina..tékkið á því!!


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 09:15:29 / dísa

Mér leiddist bara!!!

Halló los pallos,

Jábbs ég undirrituð leiddist einsog dauðu líki í  vinnunni í gær, þrátt fyrir að vera glöð að heyra að hann Justin elskan ætli að bjarga fyrrverandi sinni með því að gera dúett...ohhh justin þú ert svo nettur gaur hihi ;)

Sá að nafnið hans adda á msn var " my name is Buck and I came here to fuck", kviknaði ljós!! Ég fór að ríma og hríma á fullu, no way back!! Hér er afraksturinn:

My name is lisa and I came here to please ya 

If u want it fast than u live in the past

If u only lick u definetly dont have a big dick 

 

If u like 69, u better be mine

 

if u r insane u can go down the drane

 

if u like it rough dont forget to handcuff

 

if u dont like the stunt, go elsewhere to hunt

 

if u want the tootsie, first u must have the pussy

 

verð ykkur að góðu, ætla að gefa út bók þegar ég verð þrítug ;)

 

Til hamingju Íslands því að ég fæddist hér, ég Herdís Anna og þið haldið með mér ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 13:14:36 / dísa

Helgarplan

Allir að fjölmenna á sálarball á nasa á laugardaginn!!

Ég og auður ætlum allávega að vera í feitu nostalgíukasti og brjáluðu stuði og dansifjöri!!

 Áhugasamir hafið samband ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 20:16:58 / dísa

Justin I luv u

Bara að deila því með ykkur að ég var að fá sendann miða í pósti!!

Þar sem staðfest er að ég verði stödd í parken, Kaupmannahöfn 23 júní...að slefa yfir honum vini mínum...Justin Timberlake!! 

Þeir sem vilja koma á honum gjöfum eða bréfum eða e-s konar hlutum...talið við mig fyrir 20 maí ;)

I rock


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 09:35:49 / dísa

halló halló

Hvað er planið um helgina gullin mín ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2007 09:26:49 / dísa

YEEEESSSSS

Starfsmannafundur í vinnunni í morgun....og það var hraunað yfir helvítis dúddann sem er alltaf að bögga mig.....stoldið hans sært!! en leiðinlegt!!

Held að gaurinn þurfi að átta sig á því að hann ræður engu múhahahahahaha

go herdís go herdís

Annars þá flyt ég 1.apríl...bara að láta ykkur vita...allir velkomnir að hjálpa og fá sér pizzu og bjór :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2007 14:09:10 / dísa

Vansköpun !!!

Kom maður í bankann.....sem er víst ekki alveg talinn heill á geði, drekkur ekki frönsk vín því að þeir nota kúablóð, er víst skyldur Karli bretaprins því að þeir eru með alveg eins eyru og þolir ekki skóreimar..þannig að hann tekur þær bara úr skónum!! Hann horfði á mig og sagði með hneykslunarsvip...þú ert með svo stutt bil á milli augnanna....þú veist að það er talin vansköpun! Stelpurnar sem vinna með mér...snúa sér að okkur og alveg..hvað ertu að segja...kallinn öskrar "SJÁIÐI ÞETTA EKKI"" ég er sko listmálari og ég veit alveg um hvað ég er að tala"!!

Hana nú...mar er orðin vanskapaður lika! Eftir þetta komu allskonar umræður um mig og AUGUN MÍN. Alveg mar veit nú alveg um sína galla svo sem, vissiru þetta ekki, ég meina ég veit alveg að ég er með lítið nef, sagði ein. Önnur alveg nei guð mér finnst ekkert til í þessu hjá honum, en hinsvegar ertu soldið tileygði, já já þakka þér fyrir, þetta verður alltaf betra og betra!

Versta við þetta er að ég hef heyrt þetta áður :( bæði með litla bilið og tileygðina og var oft spurð á yngri árum hvort að ég hafi verið kýld!!

Æðislegt alveg hreint....u made my day! Djamm um helgina...tja ég veit ekki hvort að mar ætti að láta sjá sig á meðal fólks!

Jáhá...ég er hér með dæmt VANSKÖPUÐ :S


» 3 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 10:00:56 / dísa

ég um mig frá mér til mín!!!

Byrjuð að vinna...

allt orðið einum of eðlilegt aftur..úfff :(

svakalegt djamm og rugl búið að vera síðan að ég kom heim, eða bara svona meira síðan í maí hahaha

tékkið á fullt af myndum síðan um jól og áramót, afmælið hennar láru, afmælið mitt,
Gellznegger nótt hittingur og mega sega bekkjarpartý hjá óla haha snilld alveg 3 bls hehe 8)

http://new.photos.yahoo.com/herdisanna84/album/576460762386308184#page1

ciao a dopo


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 13:20:58 / dísa

jæja

jáms...nú meira en mánuður síðan að ég kom heim! Búin að vinna af mér rassgatið síðan!

Var nú samt atvinnulaus eftir áramót, en er núna komin með vinnu og byrja í næstu viku hjá KB banka! Rosalega fínt

Setti samt fleiri myndir síðan á ítalíu inná ítalíumyndir, síðan að ég var í róm og í roadtripinu mínu og svona, líka mjög heitar myndir síðan á öllum lokadjömmunum heheh

endilega tjékkið á því


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.12.2006 22:14:30 / dísa

 ég er komin!! :lol:

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 14:34:53 / dísa

Gamalt fólk merkilegur hlutur!!

Gamalt fólk er ótrúlega sérstakur hópur, í morgun var ég í strætó þá datt ein kona fyrir utan, og við alveg stopp í 10 min, var hringt á sjúkrabíl og læti, og hinar yngrigömlu konurnar nýstrípaðar...að gera e-d grín! Svo var ég að labba sömu götuna as always í skólann, þá mæti ég oft einni konu sem er að fara út...og seinast öskraði hún e-d svona nei nei en núna...var hún að sparka á fullu í snýtibréf sem var fyrir utan hurðina hjá henni, vildi sko ekki hafa þetta drasl fyrir utan...svo fussaði hún og sveijaði! Ég labbaði aðeins lengra og labbaði fram hjá konu sem talaði og talaði við sjálfan sig...fyrir allan peningin!!

Vá hvernig verðum við öll þegar við verðum gömul.........Ellen en að fussa yfir peningum, addi með vindilinn og að bæta á bjórvömbina ;) Helga flissandi :lol: og sibba að fá sér ný tattú, Hjölli silfurkrulla sötrandi megaflott rauðvín á lækjarbrekku, Auður að taka masterinn í 7 skiptið því henni fannst það svo gaman, og hanna lilja í hvítum slopp með risa þykk gleraugu því að hún er búin að rýna svo mikið í sýni ;) sé þetta alveg fyrir mér:

hvernig ætli ég verði? 8|


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.11.2006 17:01:49 / dísa

hver vill hringja í mtv og segja að það sucki feitt!!

Will u date my mom.............I wanna be you....jesús...þetta eru bara fyndustu þættirnar...mamman e-d að vera voða kúl á því til að dóttir hennar fái deit, ein fékk sér tattú og fór á með honum á club og dansaði einsog hóra og lét hann fara úr að ofan og sleikja á sér tærnar! Vá ef mamma mín myndi gera þetta.....ég myndi allávega ekki deita gaurinn eftir á!!

Ekkert cinque terre um helgina og engin skúterferð.....grenjandi rigning og þrumur og eldingar ekkert gaman!! En í staðinn var ég full alla helgina rosa gaman hehe. Komu 4 krakkar í heimsókn til Írisar og Aríönnu um helgina....Herdís djónaði klúbbinn á föstudaginn og það var ekki aftur snúið...íris á barnum og læti...það var sem sagt ekkert gert annað en að drekka og drekka meira frítt, borða og spila fimbulfamb...eðal helgi!! En einnig mjög subbó og ógeðsleg.....sváfum 7 manns í íbúðinni þeirra......mér er illt í bakinu :D

Helvítis rigningin er ennþá...andsk.....en það er indverkt partý í kvöld og mexikóst át morgun....va bene

ekki slæmt...later


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.11.2006 16:31:43 / dísa

hæhæ

ciao ciao

Aftur komin helgi, mér finnst einsog seinasta helgi hafi bara rétt verið að líða!! Og þess þá heldur, aðeins rúmar 2 vikur eftir...:| alveg ótrúlegt!!

Seinasta helgi var alger snilld, fórum saman 4 stelpur og keyrðum um alla chianti sveitina....ég varð ástfanginn...bara ólýsanlega fallegt, og skoðuðum nokkra smábæji...vá algert æði!! Sá fyrir mér þegar ég er orðin gömul og grá, að eiga sumarhús á ítalíu, svona rómó einsog í "under the tuscan sun", sitja þar með kallinum mínum að leysa krossgátur og drekka chianti..en ekki hvað! Bjóða svo fólkinu í kring í pasta og spila bridge haha snilld :D

Enduðum á því að gista í litlu sjávarþorpi, Castelglioni delle pescaia, og við vorum gebbað heppnar, var festa í gangi vegna nýrrar uppskeru á víni og ólífum, allt flydende af víni og dóti og útitónleikar og læti í þessum litla bæ! Enduðum á eina diskóinu í bænum...skemmtum okkur konunglega og áttum staðinn ;) Keyrðum svo meðfram sjónum heim...vorum farnar að sakna sjósins, búin að vera aðeins of mikið í borginni!!

Allir hrundu í það á miðvikudaginn...bara svona elduðum okkar vikulega indverska karrýrétt...nammi nammi og fórum á maracana....mjög spes kvöld haha, var svona meira að passa uppá strákinn sem býr með mér...því að hann var alltaf að kyssa e-jar stelpur...en greyið á kærustu...og vaknaði með æðislegan mórall daginn eftir...greyið gaurinn!!

Á morgun er ég að fara til Cinque terre...sem eru 5 smábæjir við sjóinn, víst rosalega fallegt þar!! En kannski í scooter road trip!! hmmm erfitt val  Mar verður víst að fara að nýta tímann vel...svo lítið eftir!! Fara til Róm næstu helgi, kaupa jólagjafir líka arrrg, fara í matreiðslutíma og svona!!

Hey já ég setti inn fleiri myndir, inní ítalíumyndir albúm 2!! check it out

allta gerast...until next time


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 17:46:23 / dísa

Jæja er þetta ekki bara e-d grín

Eigum við að tala um meiri óheppni....ég held að ég sé að komast á síðu heimsmetabók Guinnesar!!

Fyrir rúmri viku hringi ég í mömmu mína því að kreditkortið mitt virkar ekki, sama kvöld misstíg ég mig og seinna um nóttina lendi í þessu yndislega slysi í mínu og hringi í mömmu aftur daginn eftir og segi henni frá öllu og að ég þurfi að borga sekt uppá 137 evrur og að ég gæti þurft að borga meira ef gaurinn lætur mig borga fyrir viðgerðina á hjólinu sínu, hef b.t.w. ekkert heyrt meira frá! Til að toppa allt hringi ég í hana í gær því að veskinu mínu var stolið hahaha þetta er eila bara fyndið, ég er svo óheppin!! Common....hvenær hættir þetta...plús það að hafa verið veik síðan að ég kom og fengið bronketis og læti!!:(

Já þetta er e-d sem mar á ekki eftir að gleyma...en well hefði alveg til í að sleppa við þetta...bölvað vesen!! Held að mamma fari að loka símanum sínum haha 8|

Þetta þjóðfélag hérna er nú alveg sérstakt! Ég á hjóli, en ég þarf að borga sekt..merkilegt! Og það var morð hérna um daginn á sömu götu og uppáhalds kokteilbarinn okkar er...og stelpu var rænt og markaðinum hérna, sem er b.t.w. stutt frá mér!! Svo heyrir mar rosa fréttir frá Napolí....10 morð á einni viku, og svo bara skotið á sjúkrabíl og annar deyr...og allt í upplausn, neyðarfundur með Prodi!!!! Hvurslags er þetta...einsog í írak eða e-d!!

ég er alveg frá mér numin :D

later krakkar mínir...ætla að fara að fá mér frían dinner á yab ;)


» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 15:43:53 / dísa

VÁ.....alveg að deyja!!

erfiður dagur!! er ekki búin að fara heim til mín í meira en sólarhring! Er enn í sömu fötunum...sama meikupið.....bara auka þynnka og reykingalykt...oj bara vibbi!! er að fara að horfa á dirty dancing 2....ciao a dopo kv. ein ekki alveg lifandi

» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7